SPÁDÓMURINN

„Þeir birtast einfaldlega við hlið barna nóttina eftir að þau fæðast og þeir hverfa nóttina eftir að manneskja deyr … Þeir eru einn af leyndardómum lífsins. Vængirnir og austrið.“

Kolfinna er fimmtán ára og með höfuðið fullt af spurningum: Hvers vegna að eiga vængi ef maður má ekki nota þá? Um hvaða ógn voru foreldrar hennar að pískra í skemmunni og hvað felst í spádóminum sem einungis fullorðna fólkið í þorpinu þekkir?

Spádómurinn er æsispennandi saga úr framandi heimi þar sem dularfull öfl sækjast eftir völdum og það verða örlög unglingsstúlku að spyrna við fótum.

Verðlaun og viðurkenningar

  • Þriðja sæti í Bókmenntaverðlaunum starfsfólks bókaverslana í flokki barnabóka


Umsagnir

„Skemmtilega skrifað og frumlegt ævintýri, sem tekst á við flóknar og erfiðar spurningar um hvað felst í því að vera hetja.“
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir / Fréttablaðið

„Bókin er fljótlesin og spennandi. Lipurlega skrifuð og af mikilli hugmyndaauðgi. Kynjahlutverkum er frumlega snúið … Það er ánægjulegt þegar höfundar falla ekki í fastmótuð kynjahlutverk, fyrir utan þann augljósa kost að efnistökin verða frumlegri.“
Kristjana Guðbrandsdóttir / DV

„Spádómur sem grípur og gleður … Spádómurinn er virkilega spennandi bók … Aðalpersónan, Kolfinna, er vel heppnuð og sannfærandi unglingur sem auðvelt er að tengja við og söguþráðurinn er nokkuð vel heppnaður.“
Elín Björk Jóhannsdóttir / Druslubækur og doðrantar