MANDLA

Þegar grindhoruð steingrá læða gerir sig heimakomna á hjúkrunarheimili tekur öldrunarlæknirinn Eva henni fagnandi. Hún veit að rannsóknir sýna að gæludýr hafa góð áhrif á vistmenn slíkra stofnana og berst fyrir því að kötturinn fá að vera um kyrrt. En fljótlega tekur hún eftir því að allir sem læðan Mandla tekur ástfóstri við látast skömmu síðar.

Getur verið að kötturinn geti spáð fyrir um andlát fólks? Og verður Mandla bústnari og sældarlegri í hvert sinn sem heimilismaður er fluttur í líkhúsið?